Upplýsingar
Velkomin
Hér til hliðar geturðu skoðað bleiuefni sem til eru hverju sinni. Þú einfaldlega velur saman efni í bleiu og sendir á netfangið montrassar@gmail.com
Dæmi: regnboga PUL + rautt microfleece + rauðar smellur
Bleiurnar eru í stærðunum Small, Medium, Medium Long og Large
Athugið að börn eru misjöfn í vextinum og því er kílóaviðmiðið hér fyrir neðan ekki algilt!
Small 3-8 kg
Medium 6-13+ kg (hægt er að bæta auka smelluröð við og þá passar bleian í kringum 4 kg)
Medium Long 8-14 (hentar vel fyrir löng og grönn börn)
Large 10-17+ kg
Verð
- Einlit: 2600 kr.
- Mynstruð: 2900 kr.
- Tilboð: Bleia af lager + microfiber innlegg 3100 kr
-Bleiurnar eru seldar án innleggja
One size innlegg frá Gad’s og Bumgenius seld sér:
Gad’s
Bumgenius
Micorfiber innlegg: 890 kr (850 kr. ef keypt er með bleiu)
Innlegg úr 4 lögum af rakadrægu microfiber efni. Hægt er að tvöfalda rakadrægnina á álagsstöðum með því að brjóta fremsta flipann inn og staðsetja hann þar sem þörf er á mestri rakadrægni.
Hamp innlegg (aðeins fáanlegt frá Gad’s): 1090 kr (1000 kr. ef keypt er með bleiu)
Innlegg úr 4 lögum af rakadrægu hamp efni. Hægt er að tvöfalda rakadrægnina á álagsstöðum með því að brjóta fremsta flipann inn og staðsetja hann inn í bleiunni þar sem þörf er á mestri rakadrægni.
Nauðsynlegt er að forþvo innleggið nokkrum sinnum áður en full rakadrægni næst. Hampur er sagður mjög græðandi og því er í góðu lagi að hafa innleggið næst húð barnsins
-Það tekur mig 2-14 daga að skila hverri pöntun (eins og staðan er núna). Tímalengdin fer eftir því hversu stór pöntunin er og hversu mikið er að gera hjá mér.
-Ef senda þarf bleiuna með pósti bætast 500 kr við heildarupphæðina.
-Í augnablikinu get ég aðeins tekið við peningum og millifærslum.
Síðan er í vinnslu en efnaúrval er reglulega uppfært. Ef þú hefur einhverjar spurningar, hikaðu þá ekki við að hafa samband við mig á netfangið montrassar@gmail.com
Kveðja Hlín

